Þar sem við vorum að fá nýja sendingu af Connetix fannst okkur tilvalið að skrifa smá fimmtudags fróðleik um það afhverju við mælum með segulkubbum og hvað börn geta lært í leik með segulkubbum!
Eins og við höfum oft komið inn á áður en leikur ómissandi þáttur í þroska barna en í leik efla börn sköpunargáfu, samhæfingu og félagshæfni.
Segulkubbar eru einstaklega áhugaverðir og skemmtilegt leikfang þar sem þeir flokkast sem opinn efniviður og bjóða upp á endalausa möguleika. Þú getur lesið um opinn efnivið hér. Þegar börn leika með segulkubba öðlast þau mikilvæga færni sem að mun styrkja þau fyrir framtíðina. Hér getur þú líka lesið blogg afhverju kubbar efla fínhreyfingar barna.
Segulkubbar eru frábær verkfæri til að örva sköpunargáfu. Þeir hvetja börn til að hugsa út fyrir rammann og prófa nýjar hugmyndir. Með því að tengja kubbana á mismunandi vegu, geta börn búið til allt frá einföldum formum til flókinna bygginga.
Spurningar á borð við: Hvað gerist ef ég set kubb hérna? En ef ég tek þennan kubb? Hvernig passa þessir litir saman? Og svo miklu fleiri spurningar eru algengar þegar börn eru að leika með segulkubba.
Fínhreyfingar
Leikur með segulkubbum krefst nákvæmni í hreyfingum. Börn þurfa að beita fínhreyfingum þegar þau tengja kubbana saman, sem hjálpar þeim að efla stjórn á höndum, úlniðum og fingrum.
Vitsmunalegur Þroski
Segulkubbar hvetja börn til að beita rökhugsun. Þegar barn er að byggja þarf það að ígrunda hvernig kubbarnir tengjast og hvaða kubba sé skynsamlegast að nota hvar til þess að ná tilteknu markmiði.
Félagsfærni og Samvinna
Leikur með segulkubbum er einnig frábær leið til að efla félagsfærni. Oft leika börn saman með segulkubba og þurfa þá að læra að vinna saman, deila hugmyndum og kubbum, ræða saman og vera sammála um hvernig byggingin, garðurinn, eldflaugin, húsið eða það sem þau eru að byggja eigi að vera!
Skemmtilegt fyrir fjölskylduna : Við fáum ósjaldan pósta frá foreldrum sem eru þakklátir sjálfum sér að hafa keypt segulkubba því þeir endast vel, allur aldur hefur gaman að þeim og foreldrar hafa gaman að því að leika við börnin sín.
Með því að leika með segulkubba geta foreldrar stuðlað að þroska barna sinna í gegnum leik. Og það sem er skemmtilegast er að það er alltaf hægt að bæta í safnið - okkar skoðun er sú að það sé aldrei hægt að eiga of mikið af segulkubbum!
Við hjá Playroom seljum segulkubba frá Connetix og frá Cleverclixx.
Bílabrautin frá Cleverclixx - skoða hér
Hvaða segulkubba pakka ætlar þú að láta næst á óskalistann?
