Vöruskil

Vöruskil
Vörum sem eru pantaðar af netinu er hægt að skila innan 14 daga og fá endurgreiðslu gegn framvísun sölureiknings sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt. Þetta gildir þó ekki um vörur sem eru sérpantaðar eða útsöluvörur. Vöru fæst eingöngu skilað sé hún ónotuð og í upprunalegum óskemmdum umbúðum. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Við skil á vöru er miðað við verð samkvæmt greiðslukvittun og er varan endurgreidd að fullu. Ef meira en 14 dagar eru frá vörukaupum getur kaupandi skipt vörunni fyrir aðra vöru eða fengið inneignarnótu eftir að varan hefur verið móttekin. Sendingarkostnaður fæst ekki endurgreiddur og kaupandi ber ábyrgð á sendingunni þar til hún hefur borist Playroom.
Ef skila á vöru með skiptimiða þá er hægt að skipta vörunni fyrir aðra vöru. Ef viðskiptavinur vill ekki skipta vörunni fyrir aðra vöru verður gefin út rafræn inneignarnóta eftir að varan er móttekin. Inneignarnótan er í formi kóða sem hægt er að nota í vefverslun. Vinsamlegast sendið tölvupóst á netfangið playroom(at)playroom.is áður en vöru er skilað.
Við vöruskil skal viðskiptavinur skila vörunni í gegnum vöruskil Dropp hér og er verðið samkvæmt verðskrá Dropp. Kostnaðurinn dregst frá upphæðinni sem viðskiptavinur fær endurgreidda eða í formi inneignarnótu.