Skilmálar og skilyrði
Upplýsingar um seljanda
Playroom ehf. Kt. 640323-0350. Playroom áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða hætta við pantanir án fyrirvara. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.
Greiðsla
Hægt er að greiða fyrir vörur með greiðslukorti í gegnum greiðslugátt Verifone, Netgíró eða með millifærslu. Millifærsla þarf að berast innan við 6 klst frá pöntun.
Öll verð í vefverslun eru gefin upp með virðisaukaskatti en sendingakostnaður bætist við áður en greiðsla fer fram.
Afhending vöru
Hægt er að fá pantanir sendar með Dropp um allt land, sjá afgreiðslustaði. Almennt eru pantanir eru afgreiddar til Dropp á 0-3 virkum dögum eftir að pöntun berst nema að annað sé tekið fram. Athugið að eftir stóra afsláttardaga gæti afgreiðslutími lengst.
Kaupandi ber ábyrgð á að ganga úr skugga um að gefa upp réttar upplýsingar við pöntun. Af öllum pöntunum dreift af Dropp gilda eftirfarandi skilmálar.
Sendingarkostnaður miðast við verðskrá dropp
Pantanir eru einungis sendar á Flytjanda þar sem Dropp afhendingarstaður er ekki í boði.
Forpantanir
Þegar um forpöntun er að ræða er skal lesa vel yfir upplýsingar sem gefnar eru hverju sinni. Forpöntun merkir að varan er ekki til á lager en þú hefur möguleika á því að senda inn pöntun og tryggja þér eintak af vörunni. Athugið að ekki er hægt að hætta við forpantanir né fá þær endurgreiddar þar sem þær eru sérpantaðar fyrir viðskiptavininn, hægt er að skipta vörunni í aðra vöru sé þess óskað sérstaklega. Playroom ehf. ber ekki ábyrgð á ófyrirsjáanlegum töfum á forpöntunum. Við munum upplýsa þig þegar pöntunin þín er tilbúin til afhendingar. Greitt er fyrir vöruna við forpöntun, líkt og af venjulegum pöntunum á því verði sem er í gildi þegar pöntun er gerð.
Athugið að ef pantaðar eru fleiri vörur en sú sem er í forpöntun þá er öll pöntunin afgreidd þegar varan er komin á lager.
Vöruskil
Vörum sem eru pantaðar af netinu er hægt að skila innan 14 daga og fá endurgreiðslu gegn framvísun sölureiknings sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt. Þetta gildir þó ekki um vörur sem eru sérpantaðar eða útsöluvörur. Vöru fæst eingöngu skilað sé hún ónotuð og í upprunalegum óskemmdum umbúðum. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið.Við skil á vöru er miðað við verð samkvæmt greiðslukvittun og er varan endurgreidd að fullu nema vara sé á útsölu eða á sértilboði við vöruskil. Þ.e. ef vöru er skilað þegar hún er á tilboði eða útsölu er miðað við verð vörunnar þann dag sem henni er skilað.
Ef meira en 14 dagar eru frá vörukaupum getur kaupandi skipt vörunni fyrir aðra vöru eða fengið inneignarnótu eftir að varan hefur verið móttekin. Sendingarkostnaður fæst ekki endurgreiddur og kaupandi ber ábyrgð á sendingunni þar til hún hefur borist Playroom.
Ef skila á vöru með skiptimiða þá er hægt að skipta vörunni fyrir aðra vöru. Ef viðskiptavinur vill ekki skipta vörunni fyrir aðra vöru verður gefin út rafræn inneignarnóta eftir að varan er móttekin. Inneignarnótan er í formi kóða sem hægt er að nota í vefverslun. Vinsamlegast sendið tölvupóst á netfangið playroom(at)playroom.is áður en vöru er skilað.
Hægt er að skila vörum gegn gjaldi í gegnum vöruskil Dropp hér og er verðið 850 kr á höfuðborgarsvæðinu og 1.050 kr utan höfuðborgarsvæðisins. Kostnaðurinn dregst frá upphæðinni sem viðskiptavinur fær endurgreidda eða í formi inneignarnótu.
Sé um galla í vöru að ræða áskilur Playroom ehf. sér rétt til þess að gera við vöruna ef við á, ef ekki er hægt að gera við vöruna er ný vara boðin í staðin og greiðum við sendingarkostnað sem um ræðir eða endurgreiðsla er boðin fyrir vöruna.
Að öðru leiti vísast til laga um húsgöngu og fjarsölusamninga nr.46/2000 og laga um neytendakaup.
Útsölur og vöruskil:
Skila-/skiptiréttur gildir ekki um vöru sem keypt er á útsölu.
Persónuupplýsingar
Við leggjum áherslu á öryggi persónuupplýsinga viðskiptavina okkar og förum með slíkar upplýsingar í samræmi við lög og reglur um persónuvernd og úrvinnslu persónuupplýsinga. Við söfnum eingöngu upplýsingum um viðskiptavini okkar til þess að geta veitt þá þjónustu sem beðið er um. Sjá skilmála um vafrakökur.
Öll ákvæði skilmálanna hér að ofan ber að túlka í samræmi við íslensk lög. Komi upp ágreiningur milli aðila verður slíkur ágreiningur einungis leystur fyrir íslenskum dómstólum. Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það tekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.
