Meira en bara leikur! Hvernig getur kubbaleikur styrkt fínhreyfingar?
Það er eitthvað svo heillandi og róandi við það að fylgjast með barni einbeita sér við að setja einn kubb ofan á annan, byggja eitthvað sem það sér fyrir sér, breyta og bæta. Fyrir okkur fullorðna virðist þetta einfalt, en á bak við hvern turn sem rís (og hvert hrun sem fylgir í kjölfarið) á sér stað flókið ferli í líkama og heila barnsins.
Ein mikilvægasta færnin sem börn þróa með kubbaleik eru fínhreyfingar. En af hverju skipta þessar litlu hreyfingar svona miklu máli og hvernig hjálpa hverskyns kubbar? Hvort sem það eru segulkubbar, viðarkubbar eða aðrir.
Hvað eru fínhreyfingar?
Fínhreyfingar eru samhæfðar hreyfingar minni vöðvahópa. Þær eru undirstaðan fyrir margt sem við gerum í daglegu lífi, allt frá því að hneppa skyrtu og reima skó yfir í að halda á blýanti eða nota hníf og gaffal.
Ólíkt grófhreyfingum (eins og að hlaupa, klifra og hoppa) krefjast fínhreyfingar mikillar nákvæmni og samhæfingar milli augna og handa.
Svona styrkja kubbar litlu vöðvana
1. Grip og styrkur fingra: Þegar barn teygir sig í kubb, þarf það að átta sig á stærð hans og lögun. Að grípa um lítinn kubb þjálfar „pincet-gripið“ (þar sem vísifingur og þumall mætast), sem er sama grip og barnið notar síðar til að halda á skriffærum. Við það að halda, lyfta og færa kubbana styrkjast litlu vöðvarnir í lófanum sem eru nauðsynlegir fyrir þol í handavinnu og skrift.
2. Samhæfing milli handa og augna: Til að geta staflað tveimur kubbum þarf heilinn að vinna úr því sem augun sjá og senda nákvæm skilaboð til handanna. Þetta virðist auðvelt en er þetta svo auðvelt fyrir börn? Þegar börn eru að kubba þurfa þau m.a. að setja þunnan trékubb ofan á annan. hvernig nær hann jafnvægi? Setja lítinn kubb ofan á stóran og öfugt. Barnið þarf að dæma fjarlægð, horn og jafnvægi. Hver tilraun er í raun „æfing í nákvæmni“ sem eflir samhæfingu augna og handa.
3. Stöðugleiki í úlnlið og framhandlegg: Það að byggja háan turn krefst þess að barnið haldi hendinni stöðugri á meðan fingurnir vinna verkið. Með því að leggja kubbana niður á réttan stað og raða þeim hlið við hlið eða ofan á hvern annan, lærir barnið að stjórna úlnliðnum og handahreyfingum sínum betur. Þessi stöðugleiki vinnur með manni þegar kemur að því að læra að skrifa án þess að verða þreytt í hendinni.
Mismunandi kubbar, ólíkar áskoranir:
Það er gott að bjóða upp á fjölbreytni í kubbaleik því mismunandi týpur reyna á ólíka þætti - svo er líka bara svo gaman að geta valið á milli skemmtilegra kubba:
-
Segulkubbar: Þeir eru frábærir þar sem þeir „smella“ saman, sem gefur barninu strax umbun og hvetur þau til að halda áfram að nota hendurnar.Skoða segulkubba.

-
Trékubbar: Hér reynir mest á jafnvægi og varfærni. Þar sem þeir smellast ekki saman þarf barnið að hafa enn meiri stjórn á fínhreyfingunum til að turninn hrynji ekki. Barnið eflir þá einnig þrautseigju og hugann (sjá fyrir sér hvað getur passað hvar). Skoða Just Blocks trékubba.

-
Samsetningarkubbar (t.d. kúlubraut): Þessir krefjast meiri vöðvastyrks þar sem það þarf að þrýsta þeim saman og toga þá í sundur. Það eflir því vöðvastyrkinn. Skoða kúlubrautir.

Sumir segja að leikurinn sé besta kennslustofan
Börn þurfa ekki alltaf að vita tilganginn á bakvið einhverja vinnu eða leik en oft gleður það okkur fullorðna fólkið að vita að við séum að styrkja og efla barnið okkar. Þegar barnið er að kubba er það ekki að hugsa ,,vá núna er ég að bæta fínhreyfingarnar mínar" fyrir þeim er þetta sköpun, tilraunastarfsemi og skemmtun en aðallega LEIKUR. Sem foreldrar getum við stutt við þetta með því að sitja hjá þeim, hvetja þau til að prófa nýjar leiðir og sýna þeim hvernig hægt er að kubba.
Hvaða kubbar eru vinsælastir á þínu heimili?
Hvaða kubba ætlar þú að hafa á næsta óskalista?
Kíktu á úrvalið okkar á Playroom.is og finndu næstu áskorun fyrir litlu fingurna!
