Afhverju ættu börn að púsla?

Púsl er dásamlegt þroskaleikfang. Þegar börn púsla lítur það út fyrir að vera róleg stund við borðið en þegar barnið situr og púslar er heilinn á fullu. Það er að æfa hendurnar, augun, þolinmæðina og orðaforðann, allt í einu. Sem kennari sé ég aftur og aftur hvað þessi einfalda iðja gerir mikið fyrir börn. Hér eru fimm ástæður fyrir því að púsl á skilið fast pláss á heimilinu.

1. Fínhreyfingar

Að grípa lítinn bita, snúa honum og koma honum nákvæmlega fyrir krefst mikillar stjórnar í fingrum og úlnlið.

Þetta eru sömu vöðvar og samhæfing og barnið þarf seinna til að halda á blýanti, klippa með skærum og hneppa tölum. Púsl með hnúðum hentar vel yngstu börnunum. Eftir því sem fingurnir styrkjast ráða þau síðan við minni og þynnri bita.

2. Rýmisgreind

„Passar hann svona... eða svona?“ Í hvert sinn sem barnið snýr bita og prófar nýja stöðu er það að þjálfa rýmisgreind.

Rýmisgreind er hæfnin til að sjá form fyrir sér, átta sig á hvernig hlutir tengjast og hvernig þeir líta út frá ólíkum hliðum. Hún nýtist síðar í stærðfræði, við að lesa kort og jafnvel við að raða í uppþvottavélina. Púsl er ein skemmtilegasta leiðin til að æfa hana.

3. Þrautseigja

Bitinn passar ekki. Barnið reynir annan. Og annan. Svo smellur hann loksins á sinn stað.

Þetta litla augnablik kennir eitthvað sem er erfitt að kenna með orðum: að það sé í lagi að gera mistök og að það borgi sig að halda áfram. Þrautseigja er ein mikilvægasta færni sem barn getur æft og í púsli fær það að æfa hana aftur og aftur án þess að mikið sé í húfi.

4. Einbeiting

Púsl hefur skýrt upphaf og skýran endi sem getur hjálpað barninu að staldra við og klára eitt verkefni.

Í heimi fullum af skjám og hröðu áreiti er dýrmætt að eiga leik sem biður um ró. Barn sem sökkvir sér í púsl er að æfa athygli sem nýtist því í skólanum og í lífinu. Byrjið smátt: nokkrar mínútur eru frábær byrjun og tíminn lengist af sjálfu sér.

5. Málþroski

Púsl verður að málörvun um leið og fullorðinn sest með barninu.

Spjallið á meðan er gull fyrir orðaforðann:

  • „Hvar er blái bitinn?“ æfir liti.
  • „Hann á að fara efst í hornið“ æfir staðsetningarorð eins og efst, neðst, við hliðina á.
  • „Hvað heldurðu að dýrið sé að gera?“ æfir frásögn og ímyndunarafl.

Þið þurfið ekki að gera neitt sérstakt. Bara að tala saman um það sem þið sjáið.

Ábendingar frá kennaranum

Besta púslið er aðeins erfiðara en barnið ræður auðveldlega við. Þar gerist oft þroskinn.

  • Byrjið á rammanum. Sýnið hvernig hornin og beinu kantarnir koma fyrst.
  • Hjálpið með spurningum, ekki svörum. „Hvaða litur á að vera hér?“ gefur barninu tækifæri til að finna lausnina sjálft.
  • Hættið á meðan það er gaman. Hálfklárað púsl má bíða til morguns.
  • Hrósið fyrir að halda áfram, ekki bara fyrir að klára.

Að lokum

Og svo er það tilfinningin þegar síðasti bitinn fer á sinn stað. Stoltið í andlitinu, „ég gat þetta!“. 

Púsl þarf ekki að vera flókið eða dýrt til að gera mikið gagn. Það þarf bara að passa barninu og fá að vera með í hversdagsleiknum.

Þú finnur úrval af vönduðum púslum hjá okkur! Smelltu hér til að skoða púslin frá Goki!