Rakakrem

4.490 kr

Rakakrem sem er sérstaklega hannað fyrir unga og viðkvæða húð. Með kreminu ætti húðin að haldast mjúk, ljómandi og full af raka allan daginn.
Flaskan er 50ml/1.69 fl.oz 

Kremið er hannað fyrir unga og viðkvæma húð. Kremið hefur nærandi áhrif ásamt því að vera rakagefanda. Kremið er gert úr náttúrulegum og eiturefnalausum efnum og ætti því ekki að hafa ertandi áhrif. Kremið ætti því að henta til daglegrar notkunar.

Í kreminu er jojoba olía og shea butter sem mýkir, og nærir húðina ásamt því að hafa róandi áhrif. 

Kremið er gert í Ástralíu og er vegan svo það er hvorki prófað á dýrum né neinar dýraafurðir notaðar þegar það er búið til.

Kremið hentar einstaklega vel fyrir

Þá sem vilja blíðar vörur fyrir andlitið án skaðlegra efna.

Þá sem eru ekki tilbúnir til þess að nota vörur sem eru hannaðar fyrir fullorðna húð.

Þá sem eru með viðkvæma húð og vilja nota efni sem henta fyrir hana.

Þau sem eru farin að sýna húðumhirðu eða ,,skincare" áhuga, og kjósa að nota vönduð, náttúruleg efni til þess að sinna því áhugamáli.

Formúlan á bakvið Oh Flossy vörurnar var þróuð af snyrtifræðing án kemískra- og rotvarnarefna. Formúlan á bakvið vörurnar er eiturefnalaus og innihaldsefnin eru 100% náttúruleg og vegan svo vörurnar ættu ekki að erta viðkvæma húð. Kremið er hannað sérstaklega fyrir unga viðkvæma húð, er PH jafnað og gert í Ástralíu.

Allar vörurnar frá Oh Flossy eru án parabena, nanóagna, þalata, jarðaolíu, PEG og talkúm. ( parabens, nano-particles, phthalates, petroleum (and petroleum by-products), PEG's and talc.)
Frekari upplýsingar um innihaldsefni Oh Flossy má nálgast hérna