Afmæliskaka

5.590 kr

Til hamingju með afmælið! 
Afmæliskakan hefur tvær hliðar, súkkulaði og jarðaberja og er í sex sneiðum.
Settið inniheldur hníf, sex kerti, kökudisk og litla plötu sem skrifa má skilaboð á með krít.

Afmæliskakan gerir hlutverkaleikinn skemmtilegri. Núna er hægt að halda upp á afmælið fyrir bangsana eða dúkkurnar.

Afmæliskakan er frá Plan Toys en Plan Toys er fyrsta fyrirtækið í heiminum sem endurnýtir gúmmítré til framleiðslu á viðar leikföngum. Frá árinu 1981 hefur teymi Plan Toys unnið markvisst að því að framleiða hágæða viðar leikföng með það að leiðarljósi að stuðla að sjálfbærni og vernda umhverfið, nota náttúrulegustu hráefni sem möguleiki er á og endurnýta allan efnivið sem fellur til í framleiðsluferlinu.