Þrifasett

5.092 kr 5.990 kr

Það er svo gott að fá hjálp við þrifin á heimilinu og hvað þá frá litlu gullmolunum okkar! Þrifasettið inniheldur fötu, fægisskóflu og bursta, sköfu & spreybrúsa

Varan er frá Plan Toys en Plan Toys er fyrsta fyrirtækið í heiminum sem endurnýtir gúmmítré til framleiðslu á viðar leikföngum. Frá árinu 1981 hefur teymi Plan Toys unnið markvisst að því að framleiða hágæða viðar leikföng með það að leiðarljósi að stuðla að sjálfbærni og vernda umhverfið, nota náttúrulegustu hráefni sem möguleiki er á og endurnýta allan efnivið sem fellur til í framleiðsluferlinu.