Forsala - Seglabox - Sveitin

3,992 kr 4,990 kr

Forsala - Þessi vara er væntanleg í lok nóvember.

 

Seglabox frá Tix&Mix þar sem sveitin lifnar við! Í boxinu eru 37 litríkir seglar úr við sem börnin geta notað til þess að byggja sveitabæ, dýr og búið til allskonar sveitasögur. Börnin geta farið eftir hugmyndaspjöldunum sem fylgja með eða búið til sínar eigin sögur og ævintýri.

Boxið sjálft er segulmagnað og virkar því bæði sem leikflötur og geymsla fyrir seglana. Á boxinu er líka tafla sem hægt er að teikna á og handfang svo auðvelt er að taka það með sér, í bílinn, til ömmu og afa eða í ferðalagið. Seglarnir virka einnig fyrir segulveggina frá Tix&Mix, ísskápinn eða aðra segulfleti.

Seglaboxið er hannað til þess að efla:

  • Fínhreyfingar ásamt samhæfingu augna og handa
  • Þekkingu á dýrunum og lífinu í sveitinni
  • Rökhugsun og lausnaleit
  • Ímyndunarafl, sköpun og málþroska í gegnum sögugerð

Í boxinu er:

  • 37 seglar með sveitaþema
  • 7 tvíhliða hugmyndaspjöld
  • Segulbox með töflu og handfangi
  • 2 liti sem hægt er að þrífa af
  • 1 svamp til þess að þrífa

Seglarnir eru úr vönduðum, FSC-vottuðum krossvið og málaðir með eiturefnalausri málningu.

Hentar frá 3 ára aldri.