Baðleikföng þrjú saman - Ocean

4,590 kr

Viltu bæta einhverju við í baðið?

Hakaðu við og varan fer í körfuna.

Baðleikföng frá Petit Truc. Settið er með þremur baðleikföngum úr 100% matvælavænu sílikoni og með kemur net ásamt sogskálum til þess að geyma leikföngin í.

Í settinu eru kolkrabbinn Octave, sæskjaldbakan Tamie og báturinn Boaty. Kolkrabbinn og skjaldbakan opnast svo auðvelt er að þrífa þau.

Leikföngin fyllast af vatni þegar kreist er og sprauta svo úr mismunandi götum. Þau passa vel í litlar hendur og efla fínhreyfingar og samhæfingu handa og augna.

Settið:

  • Þrjú baðleikföng og net (32 x 20 cm) með tveimur sogskálum
  • Netið rúmar um tíu Petit Truc baðleikföng
  • Henta í baðið, á ströndina og í sundlaugina
  • Sílikonið ýtir ekki undir myndun baktería og myglu
  • Má fara í uppþvottavél
  • Frá 12 mánaða aldri

Efni:

  • 100% matvælavænt sílikon
  • Án BPA, PVC og þalata

Barn skal aldrei skilið eftir eftirlitslaust í baði.