Nestisbox úr stáli - Þrjú hólf - 1000ml

7.790 kr

Hvert sem förinni er heitið þá er alltaf góð hugmynd að taka næringarríkt og gott nesti með. Lekkabox safe frá Lekkabox hentar vel í ferðalagið og er fullkomið til taks þegar svangir magar kalla. Hvort sem það er fyrir nesti í skólann, könnunarleiðangur í garðinum eða lautarferðina þá tryggir þetta nestisbox að litli orkuboltinn þinn eða þú fáir þá orku sem þarf til að vera vel nærð/ur yfir daginn.

Þökk sé skiptingunni (nestisboxinu er skipt upp í þrjú hólf) getur þú geymt ólík matvæli aðskilin og ferðast með þau án þess að allt fari í klessu. Í stóra hólfið í þessu vandaða stálboxi passar vel útilátin samloka, vefja, beygla eða jafnvel ferskt salat. Í minni hólfin tvö geturðu svo sett uppáhalds snarlið þitt - eins og ber, ávexti, grænmetisstangir, saltkringlur eða hvað sem hugurinn girnist. 

Fyrir fullorðna sem vilja passa að vera vel nærðir yfir daginn hvort sem það er í vinnunni eða á ferðalögum mætti segja að LEKKABOX® Safe sem er með silíkonþéttingunni væri næst því að vera hinn fullkomni valkostur. Boxið hentar líka einstaklega vel fyrir langa daga í skólanum.

LEKKABOX® Safe er frábær lausn fyrir hádegismatinn í vinnunni, nestið í útivistina eða hressingu í háskólanum eða grunnskólanum! Þú getur til dæmis græjað dásamlegt salat, geymt það í kæli og notið þess svo beint úr stálboxinu þegar þér hentar. Smellurnar á hliðunum sjá til þess að auðvelt er að opna og loka boxinu.

Athugið: Þó að boxið sé lekahelt út á við fyrir þykkar sósur og blautkenndan mat (þökk sé silíkonhringnum í lokinu), þá er það ekki ætlað fyrir hreina vökva (eins og súpur) og hólfin eru ekki þétt sín á milli.

Við hvetjum þig til að skoða límmiðana til þess að skreyta nestisboxið og gera að þínu!

  • Stærð: u.þ.b. 19,5 x 14,5 x 6 cm

  • Þyngd: u.þ.b. 347 g

  • Rúmtak: u.þ.b. 1.000 ml

  • Efni: 18/8 ryðfrítt stál, silíkon (þéttihringur)

  • Umhirða: Má fara í uppþvottavél

  • Innihald pakka: 1 stk. stálbox með loki og silíkonhring