Lítil sílíkonform - græn

1.890 kr

Ferköntuð silíkonform frá Lekkabox  til þess að setja ofan í nestisboxið og ná þannig að skilja matinn að. Formin eru lítil og meðfærileg. Mjúka og sveigjanlega efnið aðlagar sig vel að því góðgæti sem þú setur í það sem gerir allt auðveldara og meðfærilegra.

Tilhugsunin um það þegar vatnsmelónan, mozarella kúlurnar og brauðið blandast hverfur algjörlega þegar barnið (og þú) veist að það er allt vel aðskilið í nestisboxinu.

Formin eru hitaþolin og er því einnig hægt að nota Lekkabox silíkonformin til að baka litlar muffins eða bollakökur! Formin mega einnig fara í frysti.

Litríku sílikonformin frá Lekkabox heilla hvern þann sem elskar bento-stílinn og mun fanga athygli barnsins þegar það opnar nestisboxið sitt og uppgötvar litríku formin full af dýrindis bitum. Gæti nestið orðið eitthvað girnilegra?

  • Stærð: u.þ.b. 5 x 5 x 4 cm

  • Efni: Matvælavottað, hert silíkon (food-safe, tempered silicone)

  • Umhirða: Má fara í uppþvottavél

  • Innihald pakka: 4 stk. silíkonform