Gjafabox eins árs

9,192 kr 11,490 kr

UPPSELT

Þetta fallega samsetta gjafasett er fullkomið fyrir litla landkönnuði frá 12 mánaða aldri. Í settinu eru fimm vandaðar vörur:

1 × Bíll - Með líflegri hönnun og ólíkri áferð sem örvar snertiskynið er þetta viðarfarartæki ekki bara skemmtilegt heldur hjálpar það líka til við að þroska skynfærin. Barnvæn hönnun og vandaður viður gera það bæði öruggt og endingargott. Litlar hendur eiga auðvelt með að grípa farartækið og keyra það um leikherbergið, og þjálfa þannig fínhreyfingar og skerpa skynfærin í gegnum leik.

1 × Önd til að draga - Það er auðveldara og skemmtilegra að læra að ganga með vin sér við hlið. Hann eltir þig hvert sem þú ferð. Eflir hreyfifærni og samhæfingu.

1 × Fyrsta púsl, dýrin okkar - Stórir hnúðar og bjartar, fallegar myndir gera þetta að tilvöldu fyrsta púsli.

1 × Spiladós - Með einni einfaldri úlnliðshreyfingu heyrist heillandi lag.

1 × Púsl með litum og formum - Þetta vandaða púsl sameinar hina einkennandi viðaráferð og fallega liti í áhrifaríkt námsleikfang sem börn hafa gaman af að leika sér með.

Hvort sem það er í afmælisgjöf, jólagjöf eða bara smá glaðning þess á milli, þá sameinar þetta sett skemmtun og lærdóm. Allar vörurnar eru barnvænar, sterkbyggðar og efla hreyfifærni og ímyndunarafl í gegnum leik.

Mælt með fyrir 1+