Dúkkan Noa

7,990 kr

Viltu bæta við fylgihlutum fyrir dúkkuna?

Hakaðu við og varan fer í körfuna með dúkkunni.

Hittu Noa, dásamlega mjúka dúkku frá Little Dutch sem vill láta knúsa sig og hugsa um sig.

Noa er hönnuð sem fyrsta dúkka barnsins, frá 18 mánaða aldri. Búkurinn er mjúkur og léttur svo hún passar vel í litlar hendur og er frábær til að leika með, kúra og jafnvel sofa með. 

Börnin geta gefið henni pela þegar hún er svöng, róað hana með snuðinu og hjálpað henni að sofna. Noa er í kjól og buxum í White Meadows mynstri og mjúkri bleikri peysu, með spöng í hárinu. Að klæða dúkkuna úr og í eflir fínhreyfingar og sjálfstæði.

Börn elska að herma eftir foreldrum sínum og með dúkkunni fá þau tækifæri til að æfa umhyggju, samkennd og félagsfærni í gegnum hlutverkaleik.

Með fylgja peli og snuð.