Byggingarpakki - 48stk

18.690 kr

Allt frá sterkbyggðum brúm og háum turnum yfir í heil byggingarsvæði! Börnin hanna og byggja sinn eigin heim með ólíkum kubbum sem bjóða upp á óteljandi möguleika!

Í þessu setti eru kubbar úr vinsælu bílabrautunum frá Cleverclixx sem lífgar rækilega upp á leikinn. Núna geta bílarnir því keyrt í gegnum byggingarsvæðið og fylgst með að allt sé í lagi! Einn bíll fylgir settinu (AA - rafhlaða fylgir ekki).

Það sem er alveg einstakt við þetta sett er að það eru tveir byggingarkranar í því. Vegna segulsins er hægt að lyfta og færa kubbana eins og á alvöru byggingarsvæði sem gerir leikinn enn skemmtilegri!

Cleverclixx gefur fjölskyldum kost á að nálgast hágæða, eflandi leikföng sem að kveikja á sköpunarkrafti, forvitni og gleði. 

Segulkubbarnir frá Cleverclixx eru stabílir, sterkir og öruggir og henta því vel til þess að búa til byggingar bæði í tvívídd og þrívídd. 

Segulkubbar vaxa einstaklega vel með börnum þar sem börnin byrja á einföldum leik og geta síðan byggt flóknari og stærri byggingar eftir því sem þau þroskast og eldast. 


MABS plast
Án BPA
Aldur: Hentar frá 3ja ára aldri
Þyng pakka; 2.15kg

Vottað: CPSC, CE, EN71, ASTM

Passar með öðrum helstu segulkubbamerkjum t.d. Connetix!

Afhverju Cleverclixx?

  • Opinn leikur - Endalausir lærdómsmöguleikar
  • Efla fínhreyfingar og rökhugsun
  • Góð samvera fyrir fjölskylduna