Arches byggingarbogar - byrjendasett 18 stk

5,592 kr 6,990 kr

Eitt form, endalaus sköpun og virkt ímyndunarafl! Arches frá Waytoplay eru opinn efniviður sem byggir á einu einföldu formi: boganum.

Bogana má smella saman á endalausa vegu, bæði hlið við hlið og enda í enda. Börnin geta byggt göng, brýr, kappakstursbrautir, turna, kúlubrautir, skúlptúra og jafnvel búið til sína eigin leiki. Leikurinn eflir fínhreyfingar, rýmisgreind og sköpunargáfu.

Arches passa fullkomlega við Waytoplay bílabrautirnar og breyta þeim í rampa, göng, brýr og hraðahindranir.

Bogarnir eru vatnsheldir, sterkir og auðvelt að þrífa, svo það má leika með þá inni, úti og jafnvel í baði. Þeir eru framleiddir í Evrópu úr 100% endurunnu plasti og umbúðirnar eru plastlausar.

Settið inniheldur:
• 18 boga

Þyngd: 0,89 kg.
Efni: 100% endurunnið ABS plast.
Framleitt í Bosníu og Hersegóvínu.
Öryggisvottað samkvæmt CE / EN 71.