Stór þroskakubbur - Safari friends

8,990 kr

Fullkomið leikfang fyrir áhugasöm börn! Þessi dásamlega fallegi viðar þroskakubbur frá Little Dutch býður upp á fjölda möguleika.

Sexhyrnd lögunin býður upp á eitthvað nýtt til að uppgötva á hverri hlið. Snúið tannhjólunum, rennið perlum, spilið á sílófóninn eða raðið formunum. Hver hlið er fallega myndskreytt og hönnuð til að efla hreyfifærni og hugsun. Perlubrautin ofan á bætir við auka áskorun og skemmtun.

Þessi dásamlegi þroskakubbur hefur jákvæð áhrif á fínhreyfingar, þolinmæði, þrautseigju og gleði barnanna ásamt því að bjóða upp á margar klukkustundir af leik og að vekja með börnunum forvitni og rökhugsun.

Hægt er að setja lokið ofan í kassann til þess að hann geymist betur (ef hann er ekki notaður sem skrautmunur í barnaherbergið).

Hentar vel frá 18 mánaða aldri.