SumBlox - minna sett

14.790 kr

Byrjendasett SumBlox er fullkomið fyrir börn sem eru að stíga fyrstu skrefin í stærðfræði. Núna getur þú fengið kubbana minni en í upphaflega eða original settinu. Kubbarnir koma í fallegri viðaröskju sem hægt er að geyma þá í þegar þeir eru ekki í notkun.

Í settinu eru 38 SumBlox kubbar úr gegnheilum við sem hjálpa börnum að þróa talnaskilning. Í settinu eru 14 stykki af tölustafnum 1, 6 stykki af 2, 4 stykki af 3, 3 stykki af 4 og ein tía. Síðan eru tveir af hverjum 5, 6, 7, 8 og 9 kubbum. Með koma 36 spil sem sýna hvernig hægt er að nýta kubbana til að efla stærðfræðiþekkingu.

SumBlox kubbarnir voru þróaðir til að hjálpa börnum að læra stærðfræði í gegnum leik. Með áþreifanlegum hætti kanna börnin nýjar hugmyndir þar sem stærð hvers kubbs endurspeglar tölugildi hans. Að handleika tölurnar hjálpar börnunum á leið þeirra til skilnings.

Settið er því tilvalið fyrir unga og upprennandi stærðfræðinga. Kubbarnir frá SumBlox henta alls staðar þar sem börnum bjóðast fjölbreyttar leiðir til náms.

Hér má lesa nánar um vörumerkið & fá hugmyndir um notkun á kubbunum.

Mælt er með kubbunum fyrir þriggja ára og eldri vegna smárra hluta.