Nestisbox úr stáli - 800ml + tvö sílikon form

6,232 kr 7,790 kr

UPPSELT

Hvert sem förinni er heitið þá er alltaf góð hugmynd að taka næringarríkt og gott nesti með.

Lekkabox safe frá Lekkabox hentar vel í ferðalagið og er fullkomið til taks þegar svangir magar kalla. Hvort sem það er fyrir nesti í skólann, könnunarleiðangur í garðinum eða lautarferðina þá tryggir þetta nestisbox að litli orkuboltinn þinn eða þú fáir þá orku sem þarf til að vera vel nærð/ur yfir daginn.

Þökk sé sílikonformunum sem fylgja getur þú geymt ólík matvæli aðskilin og ferðast með þau án þess að allt fari í klessu. Í stóra hólfið í þessu vandaða stálboxi passar samloka, vefja, beygla eða jafnvel ferskt salat. Í minni sílikon hólfin geturu svo sett uppáhalds snarlið þitt - eins og ber, ávexti, grænmetisstangir, saltkringlur eða hvað sem hugurinn girnist. 

LEKKABOX® Safe er frábær lausn fyrir hádegismatinn í vinnunni, nestið í útivistina eða hressingu í háskólanum eða grunnskólanum! Þú getur til dæmis græjað dásamlegt salat, geymt það í kæli og notið þess svo beint úr stálboxinu þegar þér hentar. Smellurnar á hliðunum sjá til þess að auðvelt er að opna og loka boxinu.

Athugið: Þó að boxið sé lekahelt út á við fyrir þykkar sósur og blautkenndan mat (þökk sé silíkonhringnum í lokinu), þá er það ekki ætlað fyrir hreina vökva (eins og súpur) og hólfin eru ekki þétt sín á milli.

Við hvetjum þig til að skoða límmiðana til þess að skreyta nestisboxið og gera að þínu!

  • Stærð: u.þ.b. 17 x 13,5 x 6 cm

  • Rúmtak: u.þ.b. 800 ml

  • Þyngd með sílikonformum: u.þ.b. 342 g

  • Þyngd án sílikonforma: u.þ.b. 260 g

  • Efni: 18/8 ryðfrítt stál, silíkon

  • Umhirða: Má fara í uppþvottavél

  • Innihald pakka: 1 stk. stálbox, 2 stk. grá sílikonform