Popcorn myndavél - Breeze

8.490 kr

UPPSELT

Lítil, létt, stílhrein og með stóra takka til að auðvelda notkun. Hoppstar Popcorn, hin fullkomnu barnamyndavél sem passar í flesta vasa.

Með Popcorn myndavélinni ertu tilbúin/n í öll ævintýri: 16GB minniskort fylgir með, svo börnin geta tekið fullt af myndum. Myndavélin er með fram- og bakmyndavél og með kemur hálsól.

Eins og allar myndavélarnar okkar kemur Popcorn með vinsælum eiginleikum eins og ljósmyndarömmum og filterum. Myndavélarnar bjóða því börnum upp á fjölda tækifæra til þess að efla sköpun og ljósmyndun.

Myndavélin passar vel í minni töskurnar frá Hoppstar. Sjá hérna.

  • Sjálfvirkur fókus.
  • Sjálfvirk litastilling svo að myndirnar séu náttúrulegar.
  • Sjálfvirk ISO jöfnun.
  • Sjálfvirk lita leiðrétting.
  • Sjálfvirk birtustigs aðlögun.
  • Hægt er að taka myndir og myndbönd.
  • Skynjar andlit.
  • Nokkur tungumál í boði.

Hvað er í kassanum?

  • Myndavél.
  • 16GB minniskort.
  • 1x C tengi.
  • 1x MICRO usb tengi.
  • 2in1 hálsól með innbyggðum hleðslukapli.
  • Leiðbeiningar.

Stærð: 6 x 4.1 x 2 cm
Þyngd: 40 grömm

Mælt með frá 3 ára aldri.

Þrífið myndavélina aðeins með rökum klút. Ekki skilja myndavélina eftir í beinu sólarljósi eða í of miklum hita. Haldið myndavélinni frá miklum raka, hún er ekki vatnsheld. Myndavélina má því ekki nota í vatni eða kafi. Reynið að koma í veg fyrir að missa myndavélina á hart undirlag. Myndavélina á að nota undir eftirliti fullorðinna.

Ekki opna myndavélina né láta SD kort úr annarri myndavél í hana. Þar sem um raftæki er að ræða er mikilvægt að fylgst sé með og haft eftirlit varðandi skemmdir.

Vottanir: CE, EN71, RoHS, CCC, MA.