Form - Kisur

1.890 kr

En hvað þetta er lítill og krúttlegur kettlingur að læðast þarna á milli gulrótarstanga, gúrkuskífa og mózzarella-kúla? Og ekki bara einn, því í þessu setti eru þrjú krúttleg kattarform til að skera út samlokur, brauð, álegg eða smákökur. Þessar sætu kisur munu heilla bæði litla og stóra kattaunnendur, hvort sem það er í þemafmælinu, í lautarferð á róló eða í bento-nestisboxinu.

Þegar þú útbýrð matinn með þessum dásamlegu formum muntu að öllum líkindum gleðja börnin. Þökk sé gripgóðu hlífinni er auðvelt að halda á formunum og beita þeim. Plasthlífin verndar lófann, jafnvel þegar verið er að þrýsta í gegnum þykkar samlokur eða harða ávexti og grænmeti.

Þessar litlu kisur frá Lekkabox gera matartímann skemmtilegri og krúttlegri.

UPPLÝSINGAR:

  • Stærð 1: u.þ.b. 2 x 1,9 x 4 cm

  • Stærð 2: u.þ.b. 3,4 x 2,8 x 4 cm

  • Stærð 3: u.þ.b. 5,7 x 3,3 x 4 cm

  • Efni: Ryðfrítt stál, PP (pólýprópýlen plast)

  • Umhirða: Má fara í uppþvottavél, en mælt er með handþvotti.

  • Innihald pakka: 3 stk. form úr ryðfríu stáli í mismunandi stærðum.