{"product_id":"nestisbox-ur-stali-thrju-holf-1000ml","title":"Nestisbox úr stáli - Þrjú hólf - 1000ml","description":"\u003cp\u003eHvert sem förinni er heitið þá er alltaf góð hugmynd að taka næringarríkt og gott nesti með. \u003cmeta charset=\"utf-8\"\u003eLekkabox safe frá \u003ca href=\"https:\/\/playroom.is\/collections\/lekkabox\" rel=\"noopener\" target=\"_blank\"\u003eLekkabox \u003c\/a\u003ehentar vel í ferðalagið og er fullkomið til taks þegar svangir magar kalla. Hvort sem það er fyrir nesti í skólann, könnunarleiðangur í garðinum eða lautarferðina þá tryggir þetta nestisbox að litli orkuboltinn þinn eða þú fáir þá orku sem þarf til að vera vel nærð\/ur yfir daginn.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÞökk sé skiptingunni (nestisboxinu er skipt upp í þrjú hólf) getur þú geymt ólík matvæli aðskilin og ferðast með þau án þess að allt fari í klessu. Í stóra hólfið í þessu vandaða stálboxi passar vel útilátin samloka, vefja, beygla eða jafnvel ferskt salat. Í minni hólfin tvö geturðu svo sett uppáhalds snarlið þitt - eins og ber, ávexti, grænmetisstangir, saltkringlur eða hvað sem hugurinn girnist. \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eFyrir fullorðna sem vilja passa að vera vel nærðir yfir daginn hvort sem það er í vinnunni eða á ferðalögum mætti segja að LEKKABOX® Safe sem er með silíkonþéttingunni væri næst því að vera hinn fullkomni valkostur. Boxið hentar líka einstaklega vel fyrir langa daga í skólanum.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eLEKKABOX® Safe er frábær lausn fyrir hádegismatinn í vinnunni, nestið í útivistina eða hressingu í háskólanum eða grunnskólanum! Þú getur til dæmis græjað dásamlegt salat, geymt það í kæli og notið þess svo beint úr stálboxinu þegar þér hentar. Smellurnar á hliðunum sjá til þess að auðvelt er að opna og loka boxinu.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003ci\u003eAthugið:\u003c\/i\u003e Þó að boxið sé lekahelt út á við fyrir þykkar sósur og blautkenndan mat (þökk sé silíkonhringnum í lokinu), þá er það \u003cb\u003eekki ætlað fyrir hreina vökva\u003c\/b\u003e (eins og súpur) og hólfin eru ekki þétt sín á milli.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cmeta charset=\"utf-8\"\u003eVið hvetjum þig til að skoða \u003ca rel=\"noopener\" href=\"https:\/\/playroom.is\/collections\/limmidar-fyrir-nestisbox\" target=\"_blank\"\u003elímmiðana \u003c\/a\u003etil þess að skreyta nestisboxið og gera að þínu!\u003c\/p\u003e\n\u003cul\u003e\n\u003cli\u003e\n\u003cp\u003e\u003cb\u003eStærð:\u003c\/b\u003e u.þ.b. 19,5 x 14,5 x 6 cm\u003c\/p\u003e\n\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003e\n\u003cp\u003e\u003cb\u003eÞyngd:\u003c\/b\u003e u.þ.b. 347 g\u003c\/p\u003e\n\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003e\n\u003cp\u003e\u003cb\u003eRúmtak:\u003c\/b\u003e u.þ.b. 1.000 ml\u003c\/p\u003e\n\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003e\n\u003cp\u003e\u003cb\u003eEfni:\u003c\/b\u003e 18\/8 ryðfrítt stál, silíkon (þéttihringur)\u003c\/p\u003e\n\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003e\n\u003cp\u003e\u003cb\u003eUmhirða:\u003c\/b\u003e Má fara í uppþvottavél\u003c\/p\u003e\n\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003e\n\u003cp\u003e\u003cb\u003eInnihald pakka:\u003c\/b\u003e 1 stk. stálbox með loki og silíkonhring\u003c\/p\u003e\n\u003c\/li\u003e\n\u003c\/ul\u003e","brand":"Lekkabox","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":48021197029634,"sku":null,"price":7790.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0267\/4045\/7524\/files\/lekkabox-safe-1000ml-auslaufsichere-metall-lunchbox-mit-3-faechern-plastikfrei-1.jpg?v=1781808819","url":"https:\/\/playroom.is\/products\/nestisbox-ur-stali-thrju-holf-1000ml","provider":"PLAYROOM","version":"1.0","type":"link"}