{"product_id":"glamour-fjogur-holf-skilrum-fjolublatt","title":"Glamour- Fjögur hólf (+skilrúm) - Fjólublátt","description":"\u003cp\u003eMeð Glamour-nestisboxinu frá \u003ca href=\"https:\/\/playroom.is\/collections\/lekkabox\" target=\"_blank\" rel=\"noopener\"\u003eLEKKABOX®\u003c\/a\u003e byrjar þú daginn með glimmer, gleði og réttri næringu! Í glamour nestisboxinu eru fjögur hólf ásamt skilrúmi sem er hægt að staðsetja þar sem hentar. Það þýðir að maturinn blandast ekki, brauðið verður ekki blautt eða gúrkan rauð eftir jarðaberin, heldur helst allt á sínum stað og nestið er jafn girnilegt þegar þú opnar boxið og þegar þú lokaðir því.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÍ stóra hólfið í þessu glitrandi og dásamlega boxi gæti verið skynsamlegt að setja samlokuna, rúnstykkið eða vefjuna fyrir nestistímann eða þá jafnvel salatið eða afganginn síðan í gær. Litlu hólfin tvö henta síðan fullkomlega undir ávexti, grænmeti, kex, saltkringlur eða annað meðlæti. Í minnsta hólfið passar svo eitthvað lítið og sætt, dýfa eða nokkur næringarrík og góð bláber.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eNú eru þér engar skorður settar við að útbúa fallegt og girnilegt nesti fyrir barnið þitt. Þetta dásamlega glimmerbox mun án efa veita þér innblástur til að galdra fram eitthvað nýtt og ljúffengt á hverjum degi – fyrir barnið þitt eða þig sjálfa(n).\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cmeta charset=\"utf-8\"\u003eVið hvetjum þig til að skoða \u003ca rel=\"noopener\" href=\"https:\/\/playroom.is\/collections\/limmidar-fyrir-nestisbox\" target=\"_blank\"\u003elímmiðana \u003c\/a\u003etil þess að skreyta nestisboxið og gera að þínu!\u003c\/p\u003e\n\u003ch3\u003eUPPLÝSINGAR:\u003c\/h3\u003e\n\u003cul\u003e\n\u003cli\u003e\n\u003cp\u003e\u003cb\u003eRúmtak:\u003c\/b\u003e u.þ.b. 880 ml\u003c\/p\u003e\n\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003e\n\u003cp\u003e\u003cb\u003eStærð:\u003c\/b\u003e u.þ.b. 20,9 x 16,5 x 5 cm\u003c\/p\u003e\n\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003e\n\u003cp\u003e\u003cb\u003eÞyngd:\u003c\/b\u003e u.þ.b. 375 g\u003c\/p\u003e\n\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003e\n\u003cp\u003e\u003cb\u003eEfni:\u003c\/b\u003e Trítan, silíkon\u003c\/p\u003e\n\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003e\n\u003cp\u003e\u003cb\u003eUmhirða:\u003c\/b\u003e Má fara í uppþvottavél, en mælt er með handþvotti til að hámarka líftíma.\u003c\/p\u003e\n\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003e\n\u003cp\u003e\u003cb\u003eInnihald pakka:\u003c\/b\u003e 1 stk. nestisbox, 1 stk. laust skilrúm, 1 stk. silíkonþétting.\u003c\/p\u003e\n\u003c\/li\u003e\n\u003c\/ul\u003e\n\u003cp\u003e\u003ci\u003eVarúð! Matur sem inniheldur mikið edik (t.d. ákveðnar súrsanir) getur skemmt efnið í boxinu. Til að tryggja endingu og vernda yfirborðið mælum við með því að sleppa slíkum matvælum.\u003c\/i\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003ci\u003e\u003cmeta charset=\"utf-8\"\u003eAthugið: Glamour nestisboxið er ekki alveg vatnshelt. Ef boxið er flutt standandi í bakpoka yfir lengri tíma, skal opna það varlega ef nestið inniheldur mjög fljótandi eða safaríkan mat (t.d. vatnsmelónu eða jógúrt). Í þeim tilfellum mælum við með að nota frekar lokaðar dósir með skrúfloki eða silíkonloki.\u003c\/i\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"Lekkabox","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":48021385478402,"sku":"LBet785004","price":6490.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0267\/4045\/7524\/files\/kinder-bentobox-lekkabox-classic-brotdose-fuer-schule-bpa-frei-_285-von-6_29.jpg?v=1781821879","url":"https:\/\/playroom.is\/products\/glamour-fjogur-holf-skilrum-fjolublatt","provider":"PLAYROOM","version":"1.0","type":"link"}