Millow Paris
Millow Paris – af því að maður gleymir aldrei fyrsta úrinu sínu
Millow Paris er franskt úramerki sem systurnar Ambre og Audrey stofnuðu í París árið 2018. Þegar börnin þeirra fóru að sýna tímanum og úrum áhuga fundu þær ekkert úr sem var bæði fallegt og barnvænt – svo þær hönnuðu það sjálfar.
Úrin eru hönnuð í samstarfi við úrsmið í Besançon og handsett saman á verkstæði í París. Útkoman er stílhreint og klassískt úr með retró yfirbragði, gert til að endast.
Skýr skífa með bæði klukkustundum og mínútum hjálpar börnum að læra á klukku og skiptanlegar ólar gera hvert úr einstakt.
